þriðjudagur, júní 07, 2005

Jæja Svefnpurkur
klukkan er 5:25 og ég að bíða eftir leigubíl sem skutlar mér í vinnuna... það þarf að vera morgunhani í minni vinnu (allavegana þegar maður á morgunvakt) Er búin að borða hollan morgunmat, seríos með rúsínum átti ekki jarðaber eins og í auglýsinguni og vildi ekki setja sykur á holla morgunmatinn minn.
Annars er það helst í fréttum að ég er orðin hluti af japönsku mafíuni og gegni þar mikilvægu hlutverki, sem er algjert leyndó. Leynilegir fundir verða haldnir í skóli nætur á ónefndum dögum, hef þegar sótt 2 svoleiðis fundi og hef sjaldan verið jafn spennt á ævini. Nú er bara að standa sig og passa sig að stíga ekki feilspor. Hef ákveðið að fá mér ekki tattú af ýmsum ástæðum sem seinna verða raktar þótt að það sé mjög mafíulegt í Japan.....
|

fimmtudagur, maí 19, 2005

Bloggí bloggedí blogg
það er of gott veður til að hanga inni þessa dagana. Ég er líka orðin útitekin af öllum þessum sundferðum mínum. Þegar maður er atvinnulaus eymingi þá gerir maður það sem er ókeypis. Í mínu tilfelli er það sund svo ég geri ekki neitt annað en að slæpast í vesturbæjarlauginni með gamla fólkinu. Það er magnað hvað það nær að blokkera 3-4 brautir með að synda hægt. Annars megi þið ráða mig í vinnu fyrir sanngjörn laun...... ég býð eftir tilboðum!
|

föstudagur, maí 13, 2005

Gleðifregn.....
Ég er komin með heimasíma og veraldarvefinn heim til mín, nú get ég verið inn á MSN og sjóleiðs án þess að fara út úr húsi eins og seinustu 2 árin.
Þessu ætla ég að fagna með því að halda upp í sveit og dvelja í sumarbústað forledra minna.
Ég er að reyna að hafa upp á Svanhvíti. Ég ætla sko ekki að missa af henni þegar hún er á landinu....
Ef þið eruð góð þá ´fáið þið kannski að sjá strumpaða símanúmmerið mitt...
|

miðvikudagur, maí 04, 2005

Mér var bent á japanska útvarpsstöð á netinu um daginn og er búin að hlusta dulítið á hana. Það er ekki frásögu færandi nema það að ég hef komist að þeirri niðurstöðu að japanir eru frekar dramatískir. Skil ekki neitt um hvað þeir syngja en þetta hljómar flest allt frekar tregarfullt og dramatýskt. Kannski er ég að hlusta á einhverja svona blöndu af þeirra FM og Létt stöðvum. Vona bara þeirra vegna að þeir hafa einhverja svona Xið stöð, ef ekki er ég hrædd um að allir japanskir strákar séu metró.......
|

mánudagur, maí 02, 2005

Sæl og berrössuð
Ekki enn fengið svar frá mafíuni sem arðrænir fátæka námsmenn.

Fór í bústað um helgina, þar var TRAMPOLÍN..... ég skemmti mér konunglega en fann samt að ég verð að komast í æfingu, þar sem ég var móð eftir smá stund. ER annars massa klár fór í heljarstökk og alles. Síðan slappaði ég af í heita pottinum og fékk grillaðan mat sem var alger snilld.
|

laugardagur, apríl 30, 2005

Tölfræði......
er leiðinleg.


Annars hef ég það bara leininlegt í prófunum og þrái ekkert heitar en að komast burt út bæum úr menguninni í sveitasæluna.

Ég hef ákveðið að bjóða fram gestrisni mína og ætla að reyna að taka að mér lítin japana en hef fengið lítið um svör frá mafíuni sem stendur bakvið þetta allt saman, en þau eru strax byrjuð á því að byðja mig um pening. Millifærði á þau og svo hef ég ekki heyrt neitt. Kannski þetta sé svikamilla Íslands, svona eins og svíarnir eru að kreista pening út úr íslenskum fyrirtækum, svíkur þetta dæmi út úr fátækum námsmönnum.

Get ekki beðið eftir því að komast upp í bústað, þar er nefninlega ofsa stórt trampolín, ég veit ekkert skemmtilegra en að hoppa og skoppa, á það til að verða svo æst að ég hendi börnum af trampolínum til að ég komist fyrr að. Passið ykkur bara ef þið eruð að flækajst á trampolíninu í húsdýra og fjölskyldugarðinum.

Þegar ég er búin í prófum ætla ég að grilla og drekka bjór.... hverjir eru með??
|

föstudagur, apríl 01, 2005

Jæja gott fólk......
Búin að vera léleg í að blogga, fólk er farið að skamma mig heima hjá mér. Var samt að velta fyrir mér að vera klikkað sniðug og blogga bara svona einu sinni í mánuði.
Ég er í skólanum og atvinnuleit þessa dagana. Það er leiðinlegt að vera í atvinnuleit, það tekur á. Maður upphefur sjálfan sig mikið í atvinnu umsóknum, svo þegar ég mæti í viðtöl er ég svo stressuð að ég kem ekki upp orði. Ekki furða að ég fá ekki neina vinnu hvar vill ráða litla ljósgærða og taugaveiklaða stúlku. PANT' IKKI!!!
|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com